Русские видео

Сейчас в тренде

Иностранные видео


Скачать с ютуб Okkar Líf - Einar Bárðar & Einar Ágúst af plötunni "MYNDIR 20 ára höfundarafmæli" в хорошем качестве

Okkar Líf - Einar Bárðar & Einar Ágúst af plötunni "MYNDIR 20 ára höfundarafmæli" 5 лет назад


Если кнопки скачивания не загрузились НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу страницы.
Спасибо за использование сервиса savevideohd.ru



Okkar Líf - Einar Bárðar & Einar Ágúst af plötunni "MYNDIR 20 ára höfundarafmæli"

FYRSTA LAG EINARS BÁRÐARSONAR Í TÍU ÁR ER “OKKAR LÍF” Fyrsta lag sem lagahöfundurinn Einar Bárðarson sendir frá sér í yfir í tíu ár verður frumflutt á útvarpsstöðvum landsins í vikunni. Lagið heitir "Okkar líf” og eru flytjendur lagsins höfundurinn sjálfur og nafni hans og vinur til áratuga, Einar Ágúst Víðisson úr Skítamóral. Lagið er eina nýja lagið á plötunni “Myndir” sem kemur út á föstudag. Lagið er bæði falleg ástarsaga og einnig samið og tileinkað Sálinni hans Jóns míns, sem hætti störfum í haust. OKKAR LÍF Lag: Einar Bárðar Texti: Einar Bárðar og Bragi Valdimar Skúlasson Sé þig sofa við hliðina á mér — eins og vera ber Sitjum saman þögnin og við — og slökkt sjónvarpið Þá læðist gegnum myrkrið lagið síðan þá lagið sem að kveikti — lífinu á Er ég heyri Sálina hljóm' í gegnum nóttina Er ég heyri „Okkar nótt“ Þá koma fljótt Allar þessar minningar Allir þessir vinningar Sem breyttu „Okkar nótt“ Sem breyttu „Okkar nótt“ Í „Okkar líf“ Ljúfa depurð dregur að sér — og hreyfir við mér Þá læðist að mér minning lifandi og björt og hjartað fer að hamast, aðeins of ört Er ég heyri Sálina hljóm' í gegnum nóttina Er ég heyri „Okkar nótt“ Þá koma fljótt Allar þessar minningar Allir þessir vinningar Sem breyttu „Okkar nótt“ Sem breyttu „Okkar nótt“ Í „Okkar líf“ TEXTI Í C KAFLA. Yfir hæð og haf við fylgjumst alltaf að Þetta er okkar lag við megum eiga það. Er ég heyri Sálina hljóm' í gegnum nóttina Er ég heyri „Okkar nótt“ Þá koma fljótt Allar þessar minningar Allir þessir vinningar Sem breyttu „Okkar nótt“ Sem breyttu „Okkar nótt“ Í „Okkar líf“ :þvi við eigum ÞETTA líf. MYNDBAND VIÐ LAGIÐ KOMIÐ Á YOUTUBE Tökum og vinnslu á laginu lauk eftir áramót en lagið var þó flutt á höfundarafmælistónleikum Einars í Bæjarbíói í nóvember. Þá náðist flutningurinn á myndavélar innahúss-öryggiskerfisins sem býr yfir nokkum góðum gæðum. „Við sáum þetta myndefni sem er kannski ekki alveg í takti við lokaupptökuna en við ákváðum til gamans að láta það ekki trufla okkur og klippa til myndband úr þessum vélum og einhverju efni frá gestum tónleikanna. Úr því varð þetta ágæta myndband,“ segir Einar. „Við erum líka minna líkir Brad Pitt en við héldum þannig að þetta þarf nú ekki að hafa neinn Hollywood blæ. Þetta, eins og afmælisupptökurnar, eru til gamans og góðra minninga gert,“ bætir Einar við. „Nafni minn er nú reyndar miklu vanari öryggismyndavélum í seinni tíð en hefðbundnum.“ ÁSTARSAGA ÚR BORGINNI „Það sem ég sá og heyrði Sálina gera í popptónlist varð það mér hvatning til þess að fara að semja og búa til tónlist sjálfur upp úr 1989. Ég hef fylgt þeim síðan og fylgst með. Auðvitað getur maður talið sig ríkan fyrir það eitt hafa hafa seinna kynnst þeim og unnið með þeim í kynningarverkefnum og tónleikahaldi,“ sagði höfundurinn. Þráðurinn í textanum er þó engu að síður lítil ástarsaga úr borginni. Saga sem byrjar á tónleikum Sálarinnar hans Jóns míns í Loftkastalanum 12. ágúst árið 1999, þar sem hljómsveitin frumflutti lagið “Okkar nótt”. Það voru gestir þar sem voru að fara á eina af sínum fyrstu tónleikum saman og lagið varð lagið „þeirra“. Það markaði tímamót í þeirra lífi og þannig fóru þau í gegnum lífið saman. Textinn er að hluta til byggður á mínu eigin lífi en ég þekki mörg pör sem tengja við þessa sögu og eiga eitt að tvö sálarlög sem eru „lögin þeirra“ eins og fólk segir”, bætir hann við. MYNDIR Í VERSLANIR UM HELGINA Lagið er eins og fyrr segir hluti af plötunni "Myndir" sem er að koma út um næstu helgi, þar sem þekktustu lög Einars koma út í nýjum útgáfum með nýjum flytjendum. Lagið er samið af Einari og hefur sem slíkt verið í vinnslu í um það bil 5 ár, en Bragi Valdimar Skúlason og Einar unnu textann saman og var hann kláraður í haust.

Comments